Um Hraunsnef Shop

Frá íslenskri sveit – með ást á náttúrunni og húðinni

Hraunsnef Shop fæddist úr persónulegri þörf, forvitni og þeirri trú að stundum sé það einfaldasta líka það besta.

Sagan okkar hefst í Hraunsnefi í Norðurárdal, þar sem fjölskyldan mín hefur byggt upp starfsemi sína í meira en tvo áratugi.

01

Rætur okkar liggja í sveitinni

Árið 2004 keypti fjölskyldan mín jörðina Hraunsnef í Borgarfirði. Þar hófst ævintýrið með litlu tjaldsvæði, nokkrum hótelherbergjum og léttum veitingum.

Með árunum stækkaði starfsemin og veitingareksturinn varð sífellt umfangsmeiri. Við höfum alltaf verið mikið fyrir að gera hlutina sjálf, nýta það sem náttúran gefur okkur og skapa eitthvað úr þeim hráefnum sem við höfum í kringum okkur.

Þegar veitingastaðurinn stækkaði langaði okkur að bjóða upp á kjöt úr sveitinni. Fyrst keyptum við kjöt af nærliggjandi bæjum, en fljótlega varð okkur ljóst að við vildum taka þetta skrefinu lengra og hefja okkar eigin kjötframleiðslu.

Þannig gátum við fylgt hráefninu alla leið, frá upphafi til enda, og lagt enn meiri áherslu á gæði, uppruna og fullnýtingu.

En það sem við vissum ekki þá var að þessi hugsjón ætti síðar eftir að leiða okkur inn á alveg nýjar brautir.

02

Þegar húðin mín breyttist

Ég hafði alltaf verið með mjög góða húð og þurfti lítið að hafa fyrir henni. En árið 2018, eftir að ég eignaðist mitt fyrsta barn, breyttist allt.

Ég fór að glíma við mikil húðvandamál. Húðin varð ótrúlega viðkvæm og ég fékk exem, útbrot og þurra, rauða bletti í kringum augun, nefið og munninn. Húðlæknir útskýrði fyrir mér að um væri að ræða barnaexem sem hefði fyrst komist fram hjá mér á fullorðinsárum.

Þetta hafði miklu meiri áhrif á mig en ég hefði nokkurn tímann ímyndað mér.

Á tímabili var ég nánast komin á þann stað að vilja helst ekki fara út úr húsi. Ég eyddi hundruðum þúsunda króna í dýr húðkrem og alls kyns vörur sem áttu að hjálpa. Sumt virkaði tímabundið, annað alls ekki, og mörg kremin svíðu svo mikið við snertingu að það var varla bærilegt.

Ef ég ætlaði að gera mig fína og fara eitthvað út þurfti ég að nota mikið magn af farða til að fela roðann og þurrkblettina. En húðin þoldi farðann illa og það tók oft nokkra daga að róa hana aftur.

Ég var orðin þreytt á að prófa endalausar vörur án þess að finna eitthvað sem hentaði húðinni minni.

03

Óvænt uppgötvun

Spólum nokkur ár fram í tímann.

Á Hraunsnefi vorum við farin að rækta okkar eigið kjöt og lögðum mikla áherslu á að fullnýta dýrin eins vel og mögulegt var.

Í kjötvinnslunni höfðum við þegar byrjað að bræða og hreinsa tólg til að nota sem steikingarfeiti. En einn daginn rakst ég á upplýsingar um notkun tólgar í húðvörum.

Og þar kviknaði hugmyndin.

Ég fór á fullt í að kynna mér eiginleika tólgar, hvernig hún hefði verið notuð í húðumhirðu í gegnum tíðina og hvernig hægt væri að vinna úr henni vandaðar húðvörur.

Það sem byrjaði sem smá forvitni varð fljótt að mikilli ástríðu.

Ég eyddi mánuðum í að þróa og betrumbæta hreinsunarferlið til að fá tólgina eins hreina, milda og lyktarlitla og mögulegt var. Samhliða því kynnti ég mér náttúrulegar jurtaolíur og önnur hráefni sem gætu unnið vel með tólginni.

Svo hófust tilraunirnar.

Ég blandaði, prófaði, breytti og byrjaði aftur. Smám saman urðu til þær uppskriftir sem mynda grunninn að Hraunsnef Shop í dag.

04

Frá eldhúsinu á Hraunsnefi til Hraunsnef Shop

Í febrúar 2025 setti ég fyrstu Hraunsnef Shop vörurnar í sölu á Hraunsnefi.

Ég hafði enga hugmynd um hvernig viðtökurnar yrðu, en þær fóru langt fram úr öllum væntingum. Fólk sýndi vörunum mikinn áhuga og það var ótrúlega hvetjandi að sjá að fleiri kunnu að meta þessa einföldu hugmynd.

Á sama tíma var ég sjálf farin að finna mikinn mun á húðinni minni.

Um maí 2025 var húðin orðin svo miklu betri að ég þurfti varla lengur að nota farða til að fela hana.

Í dag er húðumhirðurútínan mín einföld. Þegar ég ætla að gera mig fína nota ég Hraunsnef Shop sykurskrúbbinn, ber svo á mig Face Espresso og klára með örlitlu lituðu dagkremi.

Og það er allt og sumt.

Fyrir manneskju sem áður þurfti að fela húðina sína undir þykku lagi af farða er það ótrúleg tilfinning.

Auðvitað er húð hvers og eins ólík og það sem hentaði mér þarf ekki endilega að henta öllum. En mín eigin reynsla varð innblásturinn að því að halda áfram að þróa Hraunsnef Shop.

05

Nýtt ævintýri – Hraunsnef Shop á netinu

Í október 2026 tökum við næsta skref og opnum Hraunsnef Shop vefverslunina.

Markmiðið er einfalt: Að gera vörurnar okkar aðgengilegar fleirum, hvort sem fólk er að leita að einfaldari húðumhirðu, vill prófa eitthvað nýtt eða einfaldlega dekra við húðina með nærandi vörum úr vandlega völdum hráefnum.

Hraunsnef Shop er enn lítið, persónulegt vörumerki sem á rætur sínar í íslenskri sveit.

Hver uppskrift á sér sögu. Hver vara er þróuð af alúð og á bak við allt saman stendur sú hugsjón að nýta hráefnin okkar af virðingu og búa til eitthvað fallegt og nytsamlegt úr því sem náttúran gefur.

Frá okkar sveit, til húðarinnar þinnar.

Með hlýjum kveðjum,

Eygló
Stofnandi Hraunsnef Shop

Fyrirtækjaupplýsingar

Hraunsnef Shop er íslenskt húðvörumerki í rekstri Hraunsnefs Sveitahótels ehf.

Rekstraraðili: Hraunsnef Sveitahótel ehf.
Kennitala: 520115-2500
Heimilisfang: Hraunsnef, 311 Borgarnes, Ísland
VSK NR.: 119143