Algengar spurningar

Allt sem þú vilt vita um Hraunsnef Shop og tólg

Tallow er enska heitið yfir hreinsaða dýrafitu, oftast úr nautgripum. Tólg hefur verið notuð í húðumhirðu í margar aldir og er nú að öðlast vinsældir á ný sem náttúrulegt hráefni í húðvörum.

Tólg inniheldur fitusýrur sem hjálpa til við að mýkja húðina, viðhalda raka og styðja við náttúrulega varnarhjúp hennar.

Tólgin okkar kemur úr frjálsum nautgripum sem aldir eru upp á Hraunsnefi í Norðurárdal í Borgarfirði.

Við leggjum mikla áherslu á að nýta hráefnin okkar sem best og tólgin er fallegt dæmi um hvernig hægt er að umbreyta hráefni sem annars væri lítið nýtt í vandaða húðvöru.

Nei, ekki í Hraunsnef Shop vörunum!

Við höfum þróað sérstakt hreinsunarferli þar sem tólgin er vandlega brædd og hreinsuð til að fjarlægja óhreinindi og draga úr náttúrulegri lykt hennar.

Útkoman er mildur og nær lyktarlaus grunnur sem við blöndum síðan við vandlega valdar olíur og önnur nærandi hráefni.

Tólg er rík af fitusýrum sem geta hjálpað til við að mýkja þurra húð og draga úr rakatapi.

Hún hentar því vel í nærandi húðvörur, sérstaklega þegar húðin þarfnast aukinnar mýktar og raka. Viðkvæm húð er þó mismunandi og við mælum alltaf með að prófa nýjar vörur á litlu húðsvæði fyrst.

Tólg er stundum talin hafa fremur litla til miðlungs tilhneigingu til að stífla svitaholur samkvæmt svokölluðum stíflunarstuðli (comedogenic scale). Slíkir stuðlar segja þó ekki með vissu til um áhrif fullunninna húðvara.

Við leggjum mikla áherslu á að velja hráefnin í andlitskremin okkar af kostgæfni. Við veljum meðal annars viðbótarolíurnar sérstaklega með það í huga að lágmarka líkur á stífluðum svitaholum, án þess að fórna næringu og mýkt.

Húð hvers og eins er þó mismunandi og því mælum við með að byrja á litlu magni, sérstaklega ef þú ert með feita, viðkvæma eða bólugjarna húð.

Nei. Vörurnar innihalda nautatólg og eru því ekki vegan.

Minna en þú heldur!

Tólgarík krem eru mjög drjúg og yfirleitt þarf aðeins lítið magn í hvert skipti.

Byrjaðu á örlitlu magni, hitaðu það á milli fingranna og nuddaðu varlega inn í húðina. Þú getur alltaf bætt við ef þörf er á.

Face Cream er ríkulegt og nærandi andlitskrem sem hentar vel þegar húðin þarfnast aukins raka og mýktar.

Face Espresso inniheldur meðal annars kaffi og er hugsað sem frískandi andlitskrem sem gefur húðinni fallegan ljóma.

Bæði kremin má nota kvölds og morgna, allt eftir því hvað hentar þinni húð best.

Body Butter er sérstaklega þróað til að næra og mýkja húð líkamans.

Fyrir daglega andlitshirðu mælum við með Face Cream eða Face Espresso.

Við mælum almennt með að nota sykurskrúbbinn 1–2 sinnum í viku, eftir húðgerð.

Skrúbburinn hjálpar til við að fjarlægja dauðar húðfrumur og skilur húðina eftir silkimjúka.

Forðastu þó að nota hann á erta, sprungna eða mjög viðkvæma húð og gættu þess að skrúbba andlitið varlega.

Best er að geyma vörurnar á þurrum og svölum stað, fjarri beinu sólarljósi og miklum hita.

Þar sem tólg er náttúruleg fita getur áferð hennar breyst við hitasveiflur. Hún getur orðið mýkri í hita og stífari í kulda.

Við trúum því að góð húðumhirða þurfi ekki að vera flókin.

Með Hraunsnef Shop viljum við sameina gamlar hefðir, náttúruleg hráefni og nútímalega húðumhirðu.

Fyrir okkur snýst þetta ekki bara um húðvörur, heldur líka um uppruna, gæði, nýtingu hráefna og að búa til eitthvað gott úr því sem við höfum í kringum okkur.

Ertu með fleiri spurningar?

Við hjálpum þér með ánægju!

Sendu okkur línu á Hafa samband og við svörum eins fljótt og við getum.

Með hlýjum kveðjum, Hraunsnef Shop